Flýtilyklar
Oktoberfest KA verður 18. október!
Það verður líf og fjör á Oktoberfest í KA-Heimilinu föstudaginn 18. október. Pétur Jóhann Sigfússon verður með uppistand, Rúnar Eff tekur lagið og Rikki G sér um veisluhaldið. Að því loknu slær Hamrabandið upp í alvöru ball!
Allir sem mæta fá glæsilega KA ölkrús til eignar auk þess verður nóg af girnilegum þýskum mat í Oktoberfest stíl. Þá verða veitt verðlaun fyrir besta búninginn.
Miðapantanir eru í gegnum agust@ka.is en stakur miði kostar 7.900 kr. Einnig er hægt er að panta 8 manna borð fyrir 80.000 krónur og innifalið í því eru 16 bjórar, 2 hvítvínsflöskur og 8 KA ölkrúsir.
Ekki láta þessa mögnuðu skemmtun framhjá þér fara!
Húsið opnar klukkan 19:00 og balli lýkur klukkan 3:00, það verður því nægt fjör fyrir alla!