Flýtilyklar
Knattspyrnufélag Akureyrar leitar eftir bókara til starfa
10.03.2020
Almennt
KA leitar nú að bókara og er umsóknarfrestur til 1. apríl næstkomandi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Móttaka og skráning reikninga.
- Færsla á bókhaldi í DK bókhaldskerfið.
- Afstemming banka, viðskiptamanna og lánadrottna.
- Launaútreikningur og skil á launatengdum gjöldum.
- Frágangsvinna til endurskoðenda.
- Skýrslugerðir í tengslum við bókhald.
Menntunar- og hæfniskröfur.
- Reynsla af bókhaldsvinnu skilyrði.
- Þekking á DK-bókhaldskerfinu.
- Reynsla af launavinnslu.
- Góð almenn tölvukunnátta.
- Skipulögð og markviss vinnubrögð.
Um er að ræða 50-100% starf en nánari upplýsingar um starfið veitir Sævar Pétursson framkvæmdastjóri KA á saevar@ka.is
Umsóknarfrestur er til 1.apríl næstkomandi.
Umsækjendur eru beðnir um að láta ferilskrá fylgja umsókn.