Flýtilyklar
KA tekur á móti Connah's Quay Nomads
Hafin er miðasala á Evrópuleikinn á móti Connah's Wuay Nomads á stubb og hvetjum við alla stuðningsmenn félagsins til að tryggja sér miða og styðja strákana okkar áfram í Evrópu. Við viljum gera næstu vikur hjá félaginu eftirminnilegar og þurfum á stuðning ykkar að halda.
Heimasíðan fékk Kristján Sturlu til að kafa aðeins ofan í andstæðinga okkar og fræða okkur örlítið um þetta lið.
Nomads eða Hirðingjarnir eru atvinnumannalið frá Connah's Quay í Wales. Félagið var stofnað árið 1946 og hét upphaflega Connah's Quay Juniors en árið 1951 tók það upp nafnið Connah's Quay Nomads. Félagið leikur í efstu deild í Wales, Cymru Premier eða velsku úrvalsdeildinni. Heimavöllur liðsins var lengi vel Deeside Stadium í Connah's Quay, 1500 manna grasvöllur með einni 500 manna stúku. Fyrir þetta tímabil flutti félagið sig um set og hóf að leika á Cae-y-Castell vellinum í Flint og deilir þeim velli með Flint Town United. Sá völlur er gervigrasvöllur og tekur 3000 manns með einni 250 manna stúku.Félögin hafa átt í viðræðum um endurbætur á þeim velli með það að markmiði að völlurinn uppfylli kröfur UEFA og geti þar með hýst leiki í Evrópukeppni sem og leiki yngri landsliða.
Líkt og KA þá geta Connah's Quay Nomads ekki leikið á sínum heimavelli í Evrópukeppni þar sem heimavöllur liðsins uppfyllir ekki kröfur UEFA. Connah's Quay Nomads mun taka á móti KA á Park Hall Stadium í Oswestry, heimavelli New Saints liðsins sem einnig leikur í velsku úrvalsdeildinni. Park Hall Stadium er 2000 manna gervigrasvöllur með 1000 manna stúku.
Félagið vann sinn fyrsta stóra titil árið 1996 þegar það vann velska deildarbikarinn. Árið 2010 féll liðið á ósanngjarnan hátt úr velsku úrvalsdeildinni vegna endurskipulagningar á deildarkeppninni í Wales en snéri aftur í úrvalsdeildina árið 2012. Á undanförnum árum hefur félagið heldur betur látið til sín taka; félagið varð bikarmeistari árið 2019, vann deildarbikarinn 2020 og 2022 og urðu meistarar árið 2020 og 2021. Á síðasta tímbili endaði félagið í 2. sæti í velsku úrvalsdeildinni.
Undanfarin ár hafa Connah's Quay Nomads leikið í Evrópukeppni og hafa tvisvar sinnum komist í aðra umferð; slógu út Stabæk árið 2016 og Kilmarnock árið 2019.
Þjálfari félagsins er Neil Gibson en hann tók við í fyrra eftir að hafa stýrt áður Flint Town United og Prestatyn Town. Á seinasta tímabili var leikmannahópur liðsins að mestu skipaður leikmönnum frá Wales eða Englandi og meðalaldur hópsins rétt rúmlega 25 ár. Aldursforesti liðins er miðvörðurinn George Horan en hann er 41 árs, fæddur árið 1982. Kappinn er elsti leikmaðurinn til að skora í Meistaradeild Evrópu en þann 7. júlí árið 2021 þegar hann var 39 ára og 139 daga gamall skoraði hann fyrir liðið gegn Alashkert frá Armeníu og sló þar með met Francesco Totti.