KA og Glerártorg í samstarf - leikir KA auglýstir

Almennt
KA og Glerártorg í samstarf - leikir KA auglýstir
Kíkið á skjáinn við Glerártorg á rauðu ljósi!

Glerártorg og KA hafa gert með sér samstarfssamning sem meðal annars felur í sér að heimaleikir KA verða auglýstir á risaskjám sem standa við Glerártorg. Þetta er mikið gleðiefni enda skýrt markmið félagsins að reyna að vera sem sýnilegast og að fá sem flesta á leiki okkar liða.

Fyrsti leikurinn sem fer upp á skjáinn er að sjálfsögðu stórleikur KA og Fram í Olís deild karla í handboltanum sem fer fram á sunnudag klukkan 18:00. Leikurinn er gríðarlega mikilvægur og sannkallaður fjögurra stiga leikur enda bæði lið að keppast um áframhaldandi veru í deild þeirra bestu.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is