Íþróttafyrirlestur í Háskólanum 26. sept

Almennt

Það verður áhugaverður fyrirlestur í Háskólanum á Akureyri fimmtudaginn 26. september næstkomandi. Pálmar Ragnarsson er stórskemmtilegur fyrirlesari og körfuboltaþjálfari sem hefur slegið í gegn með fyrirlestrum um jákvæð samskipti sem hann hefur flutt víðsvegar um landið.

Fimmtudaginn 26. september mun Pálmar halda þrjá ólíka fyrirlestra í boði ÍBA, ÍSÍ, Akureyrarbæjar og Háskólanum á Akureyri. Athugið að ókeypis er inn á fyrirlestrana og hvetjum við alla sem hafa áhuga til að nýta sér þetta flotta tækifæri.

Smelltu hér til að opna facebook viðburð fyrirlestursins

Kl. 16:30 FYRIR ÍÞRÓTTAIÐKENDUR Á ÖLLUM ALDRI
Hér fjallar Pálmar á skemmtilegan hátt um samskipti í íþróttum, hvernig við getum verið góðir liðsfélagar, leiðtogar og náð því besta úr öllum í liðinu.

Kl. 17:30 FYRIR FORELDRA BARNA OG UNGLINGA Í ÍÞRÓTTUM
Hér fjallar Pálmar á skemmtilegan hátt hvernig við getum orðið fyrirmyndar íþróttaforeldrar og náð því besta út úr börnunum okkar, þjálfurum, dómurum og öðrum.

Kl. 18:30 FYRIR ALLA ÍÞRÓTTAÞJÁLFARA OG ÞÁ SEM HAFA ÁHUGA Á ÞJÁLFUN
Hér fjallar Pálmar á skemmtilegan hátt um jákvæða nálgun í samskiptum við iðkendur og hvernig hægt sé að reyna að ná því besta úr öllum iðkendum óháð getu.

Pálmar er með BS gráðu í sálfræði og hefur náð afburða árangri í þjálfun yngri flokka sem körfuknattleiksþjálfari auk þess að hafa tekið þátt í verkefni ÍSÍ og UMFÍ: Sýnum karakter sem snýr að þjálfun andlegu hliðarinnar í íþróttum.

ÓKEYPIS AÐGANGUR Í BOÐI: ÍBA, ÍSÍ, AKUREYRARBÆJAR OG HÁSKÓLANUM Á AKUREYRI.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is