Flýtilyklar
Afmælishátíð KA verður rafræn í ár
Knattspyrnufélag Akureyrar fagnar 93 ára afmæli sínu þann 8. janúar næstkomandi og hefur félagið iðulega haldið upp á afmæli sitt fyrsta sunnudag eftir afmælisdaginn. Vegna Covid-19 stöðunnar verður hinsvegar breyting á fögnuðinum að þessu sinni.
Í stað þess að halda glaðan dag í KA-Heimilinu og bjóða félagsmönnum til veislu verður sýndur þáttur á KA-TV næstkomandi sunnudag þar sem íþróttakarl og íþróttakona félagsins verða kjörin ásamt því sem að Böggubikarinn, þjálfari ársins og lið ársins verða kjörin.
Verðlaunahafar verða teknir tali og Ingvar Már Gíslason formaður KA mun halda ávarp sitt. Það er því ljóst að þú vilt ekki missa af afmælisþætti félagsins á sunnudaginn og verður spennandi að sjá hverjir hreppa hnossið að þessu sinni.
Smelltu hér til að skoða tilnefningar til íþróttakarls og íþróttakonu KA fyrir árið 2020
Athugið að þátturinn verður ekki í beinni útsendingu og fer félagið að sjálfsögðu eftir þeim samkomutakmörkunum sem nú eru í gildi.