Flýtilyklar
Aðalstjórn KA fékk úthlutaðan styrk frá KEA
04.12.2019
Almennt
KEA afhenti á dögunum styrki úr Menningar- og viðurkenningarsjóði félagsins og var aðalstjórn KA meðal þeirra sem fékk úthlutað úr sjóðnum. Einnig fékk kvennastarf Þórs/KA í knattspyrnu úthlutaðan góðan styrk.
Þá fengu nokkrir ungir afreksmenn einnig góðan styrk en meðal þeirra voru þau Karen María Sigurgeirsdóttir (knattspyrna), Svavar Ingi Sigmundsson (handbolti) og Dofri Vikar Bragason (júdó).
Við í KA erum gríðarlega þakklát fyrir styrkinn og ljóst að tilvera sjóðsins skiptir gríðarlega miklu máli í uppbyggingu íþrótta- og tómstundamála hér á Norðurlandi.