Flýtilyklar
Bríet Fjóla og Hafdís Nína lögðu Færeyjar tvívegis
03.02.2025
Fótbolti
Bríet Fjóla Bjarnadóttir og Hafdís Nína Elmarsdóttir úr Þór/KA léku báðar með U16 ára landsliði Íslands í knattspyrnu sem mætti liði Færeyja tvívegis í æfingaleikjum á föstudag og svo sunnudag. Báðir leikir fóru fram í Miðgarði í Garðabæ.
Bæði Bríet og Hafdís voru í byrjunarliðinu í fyrri leik liðanna á föstudag og komu þær heldur betur við sögu. Hafdís gerði sér lítið fyrir og gerði þrennu í 6-0 sigri Íslands en Bríet lagði einmitt upp eitt af mörkum Hafdísar.
Báðar voru þær á bekknum í leik liðanna á sunnudag sem Ísland vann 7-0 en báðar komu þær inná í síðari hálfleik. Við óskum stelpunum til hamingju með frábæra frammistöðu.