Flýtilyklar
Blaktímabilið hefst á Húsavík á morgun
Meistari Meistaranna í blakinu fer fram á morgun, laugardag, á Húsavík og markar þar með upphaf blaktímabilsins. Karlalið KA gerði sér lítið fyrir og vann alla titlana á síðustu leiktíð og leikur því að sjálfsögðu á morgun. Strákarnir mæta liði HK en Kópavogsbúar enduðu í 2. sæti í Bikarkeppninni og fá því að mæta KA í baráttunni um fyrsta bikar tímabilsins.
Kvennamegin mætast Þróttur Nes. og HK og hefst þeirra leikur klukkan 14:00 en karlaleikurinn fer fram klukkan 16:00. Við hvetjum að sjálfsögðu alla blakunnendur til að gera sér ferð á Húsavík og styðja okkar flotta lið.
Blakdeild Völsungs sýnir leikinn beint og þökkum við þeim kærlega fyrir það framtak. Útsendinguna má sjá hér fyrir neðan: