Flýtilyklar
Berenika komin með svarta beltið
12.03.2019
Júdó
Berenika Bernat júdókona í KA fékk um helgina svarta beltið þegar hún tók gráðuna 1. dan. Maya Staub var uke hjá henni og óskum við Bereniku til hamingju með áfangann og ljóst að þessi efnilega júdókona á framtíðina fyrir sér.
Berenika er júdókona ársins 2018 hjá KA en hún er Íslandsmeistari í opnum flokki auk þess sem hún tók þátt í tveimur alþjóðlegum mótum á síðasta ári þar sem hún stóð sig með sóma.