Flýtilyklar
Aðalfundur KA verður 10. apríl
Miðvikudaginn 10. apríl klukkan 18:00 fer fram aðalfundur KA í KA-Heimilinu. Við hvetjum alla félagsmenn KA óháð deildum að sækja fundinn og taka þátt í starfi félagsins enda snertir aðalfundurinn allt starf innan KA.
Fyrir aðalfund félagsins liggur tillaga að breytingum á lögum félagsins og gefst félagsmönnum möguleiki á að sjá þær tillögur á skrifstofu félagsins.
Dagskrá aðalfundar félagsins er samkvæmt lögum félagsins og er sem hér segir.
Dagskrá aðalfundar
1. Formaður setur fundinn
2. Kosning fundarstjóra og fundarritara
3. Skýrsla stjórnar
4. Reikningar félagsins lagðir fram til samþykktar
5. Lagabreytingar
6. Ákvörðun árgjalda
7. Kosning stjórnar, varastjórnar og endurskoðenda - skoðunarmanna.
8. Kosning nefnda.
9. Önnur mál.