4. flokkur með fullt hús eftir sigur á Þór

Handbolti
4. flokkur með fullt hús eftir sigur á Þór
Strákarnir hafa átt stórkostlegt ár!

Strákarnir á eldra ári í 4. flokki unnu afar sannfærandi 19-41 sigur á nágrönnum sínum í Þór í Síðuskóla í gærkvöldi en KA liðið náði 0-6 forystu í leiknum og leiddi 7-18 í hálfleik. Þetta var síðasti leikur strákanna á árinu sem hefur svo sannarlega verið magnað hjá þeim.

Strákarnir hafa unnið alla sjö leiki sína á tímabilinu og sitja á toppi efstudeildar með fullt hús stiga. Fyrr á árinu varð liðið Íslandsmeistari á síðustu leiktíð og strákarnir voru komnir í úrslitahelgi bikarkeppninnar þegar að bikarinn var flautaður af vegna COVID19.

Það er orðið lengra en margir muna hvenær drengirnir töpuðu síðast leik. Fyrir utan að vera gríðarlega gott og þétt lið innan vallar er hópurinn góður og drengirnir til fyrirmyndar hvert sem þeir koma.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is