Flýtilyklar
Kári Gautason framlengir út 2027
Kári Gautason skrifaði í dag undir nýjan þriggja ára samning við knattspyrnudeild KA og er nú samningsbundinn félaginu út sumarið 2027. Kári sem er nýorðinn 21 árs kom af miklum krafti inn í meistaraflokkslið KA síðasta sumar og vakti verðskuldaða athygli fyrir framgöngu sína.
Kári sem leikur sem bakvörður er uppalinn hjá KA og lék hann í 28 leikjum meistaraflokks á síðasta tímabili, þar af alla fimm bikarleiki liðsins er KA hampaði Bikarmeistaratitlinum í fyrsta skiptið í sögu félagsins. Hann lék fyrsta leik sinn fyrir KA í Bestu deildinni sumarið 2021 en alls hefur hann nú leikið 31 leik fyrir KA í deild og bikar.
Kári var kjörinn efnilegasti leikmaður KA á tímabilinu en hann lék eins og áður segir lykilhlutverk á tímabilinu og sýndi það heldur betur að hann er meira en klár í slaginn í deild þeirra bestu. Sumarið 2023 lék hann á láni hjá Dalvík/Reyni og sló þar í gegn er liðið tryggði sér sæti í næstefstu deild.
Það eru afar jákvæðar fréttir að Kári hafi nú framlengt við KA og ljóst að það verður áfram spennandi að fylgjast með framgöngu hans á vellinum í gula og bláa búningnum. Það má með sanni segja að Kári komi úr mikilli KA fjölskyldu en Logi bróðir hans leikur með meistaraflokk KA í handbolta og Dagur, elsti bróðirinn, leikur nú með norska liðinu Arendal eftir að hafa slegið í gegn með liði KA. Þá æfir Ásdís systir þeirra fótbolta hjá KA og foreldrarnir, þau Gauti og Hafdís, vinna gríðarlega mikið og gott sjálfboðastarf fyrir félagið.