Kappa markmannsþjálfari KA út 2026

Fótbolti

Markmannsþjálfarinn Michael Charpentier Kjeldsen eða Kappa eins og hann er iðulega kallaður hefur skrifað undir nýjan samning við knattspyrnudeild KA út keppnistímabilið 2026. Kappa hóf störf hjá félaginu í janúar á þessu ári og hefur komið af miklum krafti inn í starfið.

Það er ákaflega ánægjulegt að við séum búin að framlengja við Kappa en hann er reynslumikill danskur þjálfari. Hann er í þjálfarateymi meistaraflokks karla auk þess að sjá um markmannsþjálfun yngriflokka og hefur hann nú þegar lyft starfi okkar upp á hærra plan.

Kappa hefur mikið metnað fyrir hönd markmanna félagsins og var það mikill vilji hjá báðum aðilum að halda samstarfinu áfram og nú ljóst að hann verður áfram út keppnistímabilið 2026.

"Ég er mjög ánægður með að framlengja veru mína hjá KA og hlakka til að halda áfram að þróa afreksstarfið í meistaraflokki auk þeirra fjölmörgu öflugu ungu markmanna í yngriflokkunum. Það hefur verið frábær upplifun að koma inn í félagið og mér hefur verið afar vel tekið. Það var því ekki spurning að framlengja samninginn við KA og ég hlakka mikið til komandi ára hér fyrir norðan" sagði Kappa í samtali við heimasíðuna.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is