Flýtilyklar
Bikarmeistarar KA lið ársins - Haddi þjálfari ársins
Bikarmeistarar KA í knattspyrnu eru lið ársins hjá KA árið 2024 en þetta var tilkynnt á 97 ára afmælisfögnuði félagsins í gær. Á sama tíma var Hallgrímur Jónasson þjálfari liðsins valinn þjálfari ársins.
Sjö frábærir þjálfarar voru tilnefndir til þjálfara ársins hjá KA á árinu sem nú er liðið og er hægt að kynna sér þá hér: Tilnefningar til þjálfara ársins 2024
Hallgrímur er klókur þjálfari sem leggur leikinn vel upp, hann er einnig metnaðarfullur og duglegur þjálfari. Hallgrímur stýrði KA þegar liðið varð Mjólkurbikarmeistari eftir sigur gegn Víking. Það var eftirtektarvert hversu vel hann lagði upp sigurinn gegn Val í undanúrslitum og úrslitaleikinn sjálfan. Fyrirfram átti KA að vera minna liðið í þeim viðureignum en þegar á hólminn var komið þá unnum við sanngjarna og mikilvæga sigra fyrir félagið. Hallgrímur náði þar með að feta í fótspor Guðjóns Þórðarsonar að vinna stóran titil í knattspyrnu karla.
Steingrímur Örn Eiðsson, Hallgrímur Jónasson og Michael Charpentier Kjeldsen
Alls voru sjö lið tilnefnd til liðs ársins og er hægt að kynna sér þau hér: Tilnefningar til liðs ársins hjá KA 2024
KA varð Mjólkurbikarmeistari í fyrsta sinn í sögu félagsins í sumar en þetta var jafn fram annar stóri titill félagsins í knattspyrnu karla. Með sigrinum þá verður KA í Evrópukeppni sumarið 2025 sem er gífurlega mikilvægt fyrir félagið. Liðið vann úrslitaleikinn nokkuð sannfærandi 2-0 gegn þáverandi Bikarmeisturum Víkings á Laugardalsvelli. Dagurinn var frábær í alla staði en Akureyringar fjölmenntu suður og áttum við stúkuna, slík var stemningin. Á leið sinni í úrslitaleikinn vann liðið Lengjudeildarlið ÍR og Bestudeildarlið Vestra, Fram og Vals. Leiðin var því alls ekki létt og er liðið vel að titilinum komið.