Flýtilyklar
03.05.2010
Mjög vel heppnuð lærdómsferð 9-14 ára júdókrakka.
Þeir júdókrakkar sem æfa með flokkum 9-14 ára hjá KA fóru til Reykjavíkur nú um helgina til þess að æfa með
jafnöldrum sínum af öllu landinu. Tilgangur ferðarinnar var að kynnast jafnöldrum sínum sem eru einnig að æfa júdó án
þess að keppni sé blandað þar inn í. Einnig að fá tækifæri til þess að læra af öðrum
þjálfurum.
Lesa meira
14.04.2010
Skipting verðlauna á Íslandsmótum 2010
Nú þegar Íslandsmótum vetrarins er lokið þá er gaman að skoða hvernig skipting verðlauna hefur verið. Hér á eftir er
samantekt um skiptinguna:
Vinir okkar í JR er með langbestan árangur og er ástæða til þess að óska þeim til hamingju með það. Við í KA
getum mjög vel við unað, við erum í öðru sæti og einnig getum við hæglega talið með okkar árangri fóstbræður okkar
í Samherjum sem æfa með okkur. Annars er ánægjulegt að sjá hversu mörg félög eru að standa sig vel, sérstaklega er
fjöldi gullverðlauna hjá Selfyssingum verulega flottur.
Lesa meira
Félag: |
Gull: |
Silfur: |
Brons: |
Samtals: |
JR |
22 |
16 |
13 |
51 |
KA |
10 |
14 |
12 |
36 |
Ármann |
11 |
5 |
5 |
21 |
ÍR |
1 |
8 |
10 |
19 |
Selfoss |
7 |
4 |
6 |
17 |
Grindavik |
2 |
3 |
3 |
8 |
Þróttur |
|
1 |
2 |
3 |
Samherjar |
2 |
|
|
2 |
12.04.2010
Íslandsmót fullorðinna í júdó, 11 verðlaun.
Íslandsmót fullorðinna í júdó fór fram nú um helgina. KA átti þar 12 keppendur og unnu þau til 11 verðlauna.
Bestum árangri náði Helga Hansdóttir, en hún varð Íslandsmeistari í -63kg. flokki. Árangur keppenda KA varð annars
þessi:
Lesa meira
13.03.2010
KA-krakkar í miklu stuði á Íslandsmóti 11-14 ára í júdó.
Í dag fór fram Íslandsmót 11-14 ára í júdó og var mótið haldið á Akureyri. Árangur þeirra varð
eftirfarandi:
Lesa meira
07.03.2010
3 gull og fullt af silfri á Íslandsmóti 15-19 ára í júdó.
Íslandsmót 15-19 ára fór fram í Reykjavík um helgina. KA átti 8 keppendur á mótinu. Árangur þeirra varð
eftirfarandi:
Lesa meira
21.02.2010
Mótaskrá JSÍ
Nú er mótaskrá JSÍ fyrir restina af þessu keppnistímabili komin á netið.
Lesa meira
Hægt er að smella hér til að skoða pdf útgáfuna með
öllum mótum og viðburðum, innlendum sem erlendum sem eru frá 1. janúar til 1. júní 2010.
Til þess að skoða eingöngu innlenda
viðburði er hægt að smella á tengilinn hér að ofan undir heitinu Mótaskrá
JSÍ
09.02.2010
"Old-boys" æfingar hafnar í júdó.
Síðasta föstudag kl. 20:00 hófust "old-boys" æfingar hjá júdódeildinni. Á fyrstu æfinguna mættu nokkrar gamlar kempur sem
ekki hafa sést í júdógalla í allt of langan tíma. Framhald verður á þessum æfingum og eru nýliðar einnig velkomnir en
nú þegar hafa nokkir slíkir boðað komu sína.
Lesa meira
01.02.2010
Júdóstelpur öflugar
Um helgina fór fram Afmælismót JSÍ í aldursflokknum 15-19 ára. KA átti 3 keppendur á mótinu, þær Helgu
Hansdóttur, Fionu Ýr Sigurðardóttur og Kristínu Ástu Guðmundsdóttur.
Lesa meira
17.01.2010
KA með 6 verðlaun á RIG, enn einn sigur hjá Helgu.
Sameinað júdómót Reykjavik International Games og afmælismóts JSÍ var haldið í Ármannsheimilinu í dag. Keppendur voru
tæplega 100 talsins og komu frá öllum júdófélögum landsins.
Lesa meira
29.12.2009
KA átti 9 Íslandsmeistara á árinu - allir úr júdódeild
Í dag veitti Íþrótta- og tómstundaráð Akureyrar þeim viðkenningu sem orðið höfðu Íslandsmeistarar árið 2009
í árlegu hófi. KA átti alls 9 Íslandsmeistara og voru þeir allir úr júdódeild.
Lesa meira