Flýtilyklar
09.05.2009
Norðurlandamótið í júdó - fréttir af okkar fólki
Sunnudagur kl. 11:20
Eyjólfur keppti í fullorðinsflokki í -66kg. Hann tapaði fyrstu glímu en fékk uppreisn sem hann tapaði einnig. Hann hefur því lokið þátttöku.
13:40
Eyjólfur fékk uppreisn en tapaði henni. Þau eru því bæði búin í dag. Eyjólfur keppir svo á morgun í fullorðinsflokki.
12:47
Helga keppti eina glímu í U20 sem hún tapaði. Móherji hennar var Sabina Simmelhag.
Eyjólfur tapaði fyrstu glímunni sinni í U20 og ekki enn vitað hvort hann fær uppreisn.
11:20
Helga og Eyjólfur eru að öllum líkindum að hefja keppni í U20
11:20
Helga er búin að keppa í U17. Hún tapaði báðum glímum og hafnaði í 3. sæti. Lenti í fastataki í annarri glímunni en í hinni sigraði andstæðingur hennar með 2 yuko.
Lesa meira

Norðurlandamótið í júdó er um helgina
Fyrir þá sem hafa áhuga er hægt að fylgjast með úrslitum NM 2009 á slóðinni:
http://www.judokisa.net/kisa/pm2009/index.html
KA menn eiga tvo keppendur, þau Helgu Hansdóttur og Eyjólf Guðjónsson. Íslenskir keppendur eru alls 17. Helga keppir í -57 í aldursflokkunum U17 og U20. Eyjólfur keppir í -66 í aldursflokkunum U20 og í fullorðinsflokki.
Keppt er í U17 í dag fyrir hád en U20 í dag e/hád. Fulorðinsflokkar eru á morgun.
Ef þið viljið skoða úrslit út frá nöfnum keppenda þá er hægt að smella vinstra megin á síðunni á flokkinn >Ottelijat > Maittain. Þá sjáið þið öll nöfn keppenda á mótinu, flokkuð eftir þjóðerni. Keppendur eru 373.
Kv
Hans R.

04.05.2009
Fjöldi Íslandsmeistaratitla í júdó orðinn 438.
KA vann sinn fyrsta Íslandsmeistartitil í júdó árið 1979 er Þorsteinn Hjaltason varð Íslandsmeistari. Nú 30 árum
síðar eru titlarnir orðnir 438. Það eru 135 einstaklingar sem hafa unnið þessa titla. Flesta titla hefur Freyr Gauti Sigmundsson unnið, eða
25. Af þeim sem enn eru að keppa er Bergþór Steinn Jónsson sá sem unnið hefur flesta titla en hann hefur unnið 9 sinnum. Listi yfir
Íslandsmeistara félagsins er að finna á júdósíðu KA.
Lesa meira
27.04.2009
Íslandsmót fullorðinna í júdó, enn einn titill hjá Helgu.
Íslandsmót fullorðinna í júdófór fram
í Reykjavík um helgina. KA átti 10 keppendur á mótinu. Bestum árangri náði Helga Hansdóttir, en hún varð
Íslandsmeistari í -57kg. flokki kvenna. Frammistaða KA á mótinu var eftirfarandi:
Lesa meira
09.04.2009
Páskaæfingar
Næstu daga verða æfingar á öðrum tímum en venjulega. Í dag (Skírdag) og á föstudaginn langa eru júdóæfingar kl.
12:00. Við hvetjum alla til að mæta.
Lesa meira
Hér koma nokkrar myndir frá júdóæfingu í gær.
06.04.2009
KA áfram í 3. umferð á Bikarmóti JSÍ
Sveit KA komst örugglega áfram í 3. umferð á Bikarmóti JSÍ.
Bikarmót JSÍ fer þannig fram í 4 umferðum. Í hverrii umferð falla neðstu sveitirnar út en hinar halda áfram í næstu
umferð. Nú eru 2 umferðir að baki og er KA ein 6 sveita sem keppa mun í 3. umferð sem fram fer í haust.
Myndin hér að neðan er tekin úr viðureign KA við ÍR. KA-maðurinn Agnar Ari Böðvarsson kastar andstæðing sínum glæsilega aftur fyrir sig á bragði sem heitir Ura-nage. Agnar er sá sem á myndinni sem enn er með jarðtengingu.

Frábært hjá Helgu á Vormóti JSÍ
Feðginin Helga Hansdóttir og Hans Rúnar Snorrason kepptu á Vormóti JSÍ sem fram fór í Reykjavík nú umhelgina.
Lesa meira
19.03.2009
Íslandsmót U20
Yngri flokkar KA gerðu góða ferð suður um helgina.
Skafti Þór Hannesson KA vann öruggann sigur í -38 kg flokki í aldurshópi 11-12 ára. Skafti er mjög efnilegur judomaður og á örugglega eftir að láta mikið af sér kveða í framtíðinni. Flestar glímur Skafta tóku aðeins örfáar sekúndur og unnust á Ippon. Baldur Bergsveinsson KA vann einnig brons í þessum flokki.

09.02.2009
Bikarkeppni fullorðinna.
Bikarkeppni fullorðinna, 1. umferð af 4, verður haldin í Reykjavík 28. febrúar n.k. Við þurfum að tilkynna lið í síðasta
lagi 12. febrúar 2009. Þeir sem vilja taka þátt þurfa því að gera ráðstafanir til þess að eiga frí 28.
febrúar.
Lesa meira
25.01.2009
Helga bætti við öðru gulli á Afmælimóti Júdósambandsins.
Helga Hansdóttir, sem vann sigur í fullorðinsflokki í gær, keppti í dag í sínum aldursflokki sem er 15-16 ára. Helga vann
yfirburðasigur og kom því heim með tvenn gullverðlaun frá mótinu. Faðir Helgu, Hans Rúnar Snorrason, kom heim með tvenn bronsverðlaun
svo óhætt er að segja að Helga hafi verið föðurbetrungur :).
Lesa meira