Sprettsmót 2018
Sprettsmótið í handbolta var haldið í KA-Heimilinu sunnudaginn 2. desember 2018 þar sem strákar og stelpur í 8. og 7. flokki léku listir sínar. Þetta var fyrsta mót flestra keppenda og var mjög gaman að fylgjast með krökkunum læra betur og betur á reglurnar og spil eftir því sem leið á daginn.
Alls kepptu 23 lið á mótinu, þar af 19 frá KA en því miður var ófært frá Húsavík og því komust Völsungar ekki á mótið.