KA/Þór - Stjarnan 21-27 (2. apríl 2019) Hannes
KA/Þór tók á móti Stjörnunni í lokaumferð Olís deildar kvenna þann 2. apríl 2019. Það var lítið undir annað en stoltið en ljóst var að KA/Þór myndi enda í fimmta sæti deildarinnar og Stjarnan í því sjötta. Íslandsbanki og PWC buðu frítt á leikinn og var heldur betur mögnuð mæting í KA-Heimilið þar sem Martha Hermannsdóttir tryggði sér Markadrottningartitilinn í deildinni. Myndirnar tók Hannes Pétursson