Flýtilyklar
Myndband frá stærsta N1 móti KA!
34. N1 mót KA fór fram á KA-svæðinu undanfarna daga og tókst ákaflega vel til. Mótið heldur áfram að stækka ár frá ári og var metþáttaka í ár er 212 lið kepptu í 9 deildum. Keppendur voru um 2.000, 204 lið frá 49 félögum en alls voru leiknir 1060 leikir sem gera 29.952 mínútur af fótbolta!
Mikil gleði ríkti á mótinu enda skemmdi ekki fyrir að veðrið lék við mótsgesti alla fjóra dagana. Þá sýndi KA-TV vel frá mótinu en alls voru sýndir 116 leikir í beinni útsendingu og var þeim öllum lýst af starfsmönnum stöðvarinnar.
Gríðarlegur fjöldi sjálfboðaliða kemur að mótinu og erum við í KA ákaflega þakklát þeim sem aðstoðuðu við að allt gengi upp hjá okkur. Það er greinilegt að það er heldur betur gaman að lifa fyrir KA og ómetanlegt að slíkur fjöldi fólks aðstoði okkur við stærsta viðburð okkar á hverju ári.
Tjörvi Jónsson vann mótsmyndbandið í ár en þar má sjá nokkur stórkostleg tilþrif sem litu dagsins ljós hjá strákunum á mótinu.
Sigurvegarar mótsins í ár eru eftirfarandi:
Argentíska deildin: Breiðablik 1
Brasilíska deildin: FH 2
Chile deildin: ÍA 2
Danska deildin: Keflavík 3
Enska deildin: Stjarnan 6
Franska deildin: Höttur 2
Gríska deildin: KA 7
Hollenska deildin: Þór 7
Íslenska deildin: Stjarnan 10
Stuðboltar mótsins: ÍBV
Háttvísi og prúðmennskuverðlaun Sjóvá: Ægir
Háttvísisverðlaun Landsbankans og KSÍ: ÍBU-Uppsveitir
Sveinsbikarinn: KFR (háttvísi innan sem utan vallar)