Mikilvægur heimaleikur í dag!

Fótbolti

Það er heldur betur mikilvægur leikur á Greifavellinum í dag þegar KA tekur á móti Gróttu í Pepsi Max deild karla kl. 16:00 í dag. KA er með 3 stig eftir fyrstu fimm leiki sína í deildinni en nýliðar Gróttu eru með 4 stig eftir sex leiki.

Leikurinn verður fyrsti leikur KA-liðsins undir stjórn Arnars Grétarssonar og strákarnir eru staðráðnir í að sækja sigur í þessum mikilvæga leik. Sýnum samstöðu og sækjum sigurinn saman sem ein heild, áfram KA!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is