Leikmannakynning Þórs/KA er 11. júní

Fótbolti

Leikmannakynning Þórs/KA fyrir komandi baráttu í Pepsi Max deildinni fer fram í Hamri fimmtudaginn 11. júní næstkomandi klukkan 19:30. Andri Hjörvar Albertsson þjálfari liðsins mun kynna leikmennina sem verða í eldlínunni en Þór/KA hefur endað í einu af efstu fjórum sætum deildarinnar allt frá árinu 2008.

Léttar veitingar verða í boði og hvetjum við áhugasama til að mæta og kynna sér liðið fyrir fyrsta leik sumarsins sem er heimaleikur gegn Stjörnunni á Þórsvelli á laugardaginn, áfram Þór/KA!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is