Flýtilyklar
KA mætir Fylki í æfingaleik í dag
Það er heldur betur farið að styttast í hasarinn í Pepsi Max deildinni í sumar og til að koma sér í gírinn tekur KA á móti Fylki á Greifavellinum í dag klukkan 15:00. Þetta er fyrsti æfingaleikur liðsins eftir að Covid-19 barst til landsins og verður gaman að sjá hvernig standið á liðinu er.
Þá tekur Þór/KA á móti Gróttu í æfingaleik á Þórsvelli klukkan 13:00 í dag fyrir baráttuna í Pepsi Max deild kvenna. Miklar breytingar hafa orðið á liði Þórs/KA frá síðasta sumri og ljóst að það verður spennandi að sjá hvernig liðið plumar sig á komandi sumri.
Við hvetjum að sjálfsögðu alla sem geta til að mæta á völlinn og styðja liðið en fyrir þá sem ekki komast stefnir KA-TV á að sýna leik KA og Fylkis beint, áfram KA og Þór/KA!