Hallgrímur áfram aðstoðarþjálfari KA

Fótbolti
Hallgrímur áfram aðstoðarþjálfari KA
Hallgrímur og Arnar eftir sigur (mynd: Sævar Geir)

Hallgrímur Jónasson hefur skrifað undir nýjan samning við Knattspyrnudeild KA og verður því áfram aðstoðarþjálfari liðsins. Arnar Grétarsson tók við sem aðalþjálfari liðsins í sumar og hefur samstarf þeirra Arnars og Hallgríms gengið afar vel og mjög jákvætt að njóta áfram krafta þeirra á komandi tímabili.

Hallgrímur sem meiddist illa í bikarleik gegn Leikni í sumar og lék því takmarkað á nýliðnu tímabili mun áfram leika með liðinu en hann hefur spilað alls 29 leiki fyrir KA í deild og bikar og gert í þeim eitt mark. Hallgrímur er hokinn reynslu eftir veru sína í atvinnumennskunni með Lyngby BK, OB, SønderjyskE og GAIS auk þess sem hann hefur leikið 16 leiki fyrir A-landslið Íslands.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is