Flýtilyklar
Einar Helgason, einn af hinum fjölhæfu liðsmönnum KA er látinn
Einar fluttist til Akureyrar árið 1953 og gekk þá til liðs við Knattspyrnufélag Akureyrar. Hann varð strax markmaður meistaraflokks karla í knattspyrnu auk þess sem hann þjálfaði yngri flokka beggja Akureyrarliðanna og kenndi drengjum knatttækni á opnum völlum bæjarins.
Þegar meistaraflokkar KA og Þórs hófu að keppa undir merkjum ÍBA þjálfaði Einar liðið auk þess að standa í markinu. Merki liðsins hannaði Einar en hann var einnig listamaður. Eftir að KA og Þór hættu að senda lið undir merkjum ÍBA tók Einar við þjálfun KA liðsins árið 1975 og þjálfaði það næstu tvö árin.
Auk þess að verja mark bæði ÍBA og KA í knattspyrnu, stundaði þessi fjölhæfi íþróttamaður og keppti m.a. í handbolta, frjálsum íþróttum, skíðastökki og badminton.
Árið 1988, á 60 ára afmæli KA, var Einari veitt silfurmerki félagsins og árið 2012 var honum veitt gullmerki KSÍ.
Knattspyrnufélag Akureyrar sendir Ásdísi Karlsdóttur, ekkju Einars, börnum hans og öðrum aðstandendum samúðarkveðjur.