Flýtilyklar
Dagbjartur Búi skrifar undir fyrsta samninginn
17.07.2021
Fótbolti
Dagbjartur Búi Davíðsson skrifaði í gær undir sinn fyrsta samning við meistaraflokkslið KA í knattspyrnu. Dagbjartur sem er 15 ára gamall er gríðarlega öflugur leikmaður sem hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir framgöngu sína á vellinum.
Á síðasta sumri hampaði hann Íslandsmeistaratitlinum með liðsfélögum sínum í 4. flokki karla og er í úrtakshópi U15 ára landsliðs Íslands. Það er ekki nokkur spurning að Dagbjartur á framtíðina fyrir sér og verður áfram gaman að fylgjast með framvindu hans í gula og bláa búningnum.