Myndaveisla er KA fór í undanúrslit

Blak
Myndaveisla er KA fór í undanúrslit
Magnaður sigur hjá strákunum (mynd: Þórir Tryggva)

Karlalið KA í blaki tryggði sér sæti í undanúrslitum úrslitakeppninnar á dögunum með frábærum 3-1 heimasigri á liði Þróttar Fjarðabyggðar. Strákarnir unnu þar með einvígið 2-0 en þeir höfðu áður unnið 0-3 sigur fyrir austan.

Framundan eru sjálf undanúrslitin en þar mæta strákarnir liði Hamars sem er ríkjandi Bikar- og Deildarmeistari. KA er hinsvegar ríkjandi Íslandsmeistari eftir sigur á Hamar í úrslitaeinvíginu í fyrra og ljóst að hörkueinvígi er framundan hjá þessum mögnuðu liðum.

Þórir Tryggvason ljósmyndari var á leiknum mikilvæga gegn Þrótti Fjarðabyggð og býður hér til myndaveislu frá sigrinum góða. Kunnum honum bestu þakkir fyrir framtakið.


Smelltu á myndina til að skoða myndir Þóris frá leiknum

Þá mun kvennalið KA mæta liði Völsungs í undanúrslitunum kvennamegin en stelpurnar okkar hömpuðu Deildarmeistaratitlinum og sátu því hjá í 8-liða úrslitunum.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is