Flýtilyklar
KA sækir Fram heim í Lengjubikarnum
22.02.2020
Fótbolti
Baráttan í Lengjubikarnum heldur áfram í dag þegar KA sækir Fram heim í Egilshöllina klukkan 15:15. Leikurinn er liður í annarri umferð Lengjubikarsins en KA gerði 1-1 jafntefli gegn Fylki um síðustu helgi. Framarar töpuðu hinsvegar fyrir Keflvíkingum í sínum leik.
Leikurinn verður í beinni útsendingu á Fram-TV og þökkum við Frömurum kærlega fyrir það framtak. Við hvetjum engu að síður alla þá sem geta til að mæta í Egilshöllina og styðja KA-liðið til sigurs!