KA og Þór framlengja samstarfið um rekstur Þórs/KA

Fótbolti
KA og Þór framlengja samstarfið um rekstur Þórs/KA
Allir sáttir með samstarfið (mynd: Egill Bjarni)

Knattspyrnufélag Akureyrar og Íþróttafélagið Þór hafa undirritað nýjan samning um rekstur kvennaliðs Þórs/KA í knattspyrnu, sem og í 2. flokki kvenna. Samningurinn er í raun framlenging á eldri samningi sem undirritaður var í mars 2017 og mun nýi samningurinn gilda til haustsins 2023.

Þetta eru sannarlega ánægjuleg tíðindi enda verið mikil ánægja og mikil eining bakvið Þór/KA undanfarin ár. Með þessum samning ætlum við áfram að sjá liðið í fremstu röð íslenskrar kvennaknattspyrnu, lið sem bæjarbúar geta í sameiningu geta fylkt sér að baki.

Í samningnum er kveðið á um og áfram lögð áhersla á aukið samstarf Þórs og KA um rekstur meistaraflokks, annars flokks sem og varaliðs í meistaraflokki. Enda hefur það gefið afar góða raun að félögin komi saman að rekstrinum og beri þar með jafna ábyrgð á kvennastarfinu.


Það var mikil gleði við undirritun nýja samningsins (mynd: Egill Bjarni)

Ingi Björnsson formaður Þórs segir það er afar ánægjulegt að þessi samningur milli Þórs og KA hafi verið endurnýjaður.  ,,Samstarfið hefur gengið vel undanfarin ár og árangur liðsins verið frábær. Umgjörðin hefur verið glæsileg og liðið mætt miklum velvilja og fengið góðan stuðning. Það er því von mín að áframhald megi verða á, bæði hvað varðar gott samstarf og góðan árangur, og að þetta samstarf um kvennaknattspyrnu megi verða hvatning til frekara samstarfs félaganna  til hagsbóta fyrir iðkendur og aðra félagsmenn“ sagði Ingi Björnsson formaður Þórs.  

Ingvar Már Gíslason formaður KA sagði að ,, Hér er verið að festa í sessi það góða samstarf sem hefur verið um reksturinn undanfarin 2 ár milli félaganna. Samstarfssamningurinn er undirstaðan í því frábæra starfi sem sjálfboðaliðar félaganna inna af hendi, árangur liðsins hefur verið eftirtektarverður og gleðistundir stuðningsmanna ófáar. Nú er verið að horfa lengra fram á veginn og því er ég þess fullviss að Þór/KA haldi áfram að fylla bæjarbúa stolti. Það dylst heldur engum sem hefur fylgst með starfi Þór/KA að núverandi samstarf félaganna hefur gert rekstrarumhverfi Þór/KA mun öflugra sem vonandi heldur áfram að skila sér í yngri flokka starf félaganna“ sagði Ingvar Már Gíslason formaður KA.

Undir samningana skrifuðu fyrir hönd Þórs og KA;

Ingvar Már Gíslason, formaður KA

Hjörvar Marons f.h. knattspyrnudeildar KA

Ingi Björnsson, formaður Þórs

Þórður Halldórsson f.h. knattspyrnudeildar Þórs


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is