Flýtilyklar
KA mætir Magna kl. 19:00 í kvöld
10.01.2020
Fótbolti
Kjarnafæðismótið í knattspyrnu heldur áfram í kvöld þegar KA mætir Magna klukkan 19:00 í Boganum. Leikurinn er liður í þriðju umferð mótsins og er KA liðið með fullt hús stiga eftir sannfærandi sigra á Völsung og KA2.
Kjarnafæðismótið er mikilvægur liður í undirbúningi liðsins fyrir komandi sumar og alveg ljóst að KA liðið ætlar sér sigur á mótinu. Magnamenn leika áfram í næstefstu deild á komandi sumri og má búast við fjörugum leik í Boganum.
Leikurinn verður í beinni útsendingu á KA-TV fyrir þá sem ekki komast og er hægt að nálgast útsendinguna hér fyrir neðan: