Jóan Símun snýr aftur í KA!

Fótbolti
Jóan Símun snýr aftur í KA!
Velkominn aftur í KA!

KA barst heldur betur góður liðsstyrkur fyrir komandi sumar er Jóan Símun Edmundsson skrifaði undir hjá félaginu en þessi 33 ára gamli framherji/miðjumaður er einhver besti leikmaður í sögu Færeyja.

Jóan gekk fyrst í raðir KA undir lok júlí mánaðar sumarið 2023 þar sem hann sýndi gæði sín. Eftirminnileg er frammistaða hans í evrópueinvígi KA gegn írska stórliðinu Dundalk FC sem KA vann samanlagt 5-3 en Jóan skoraði fyrra mark KA í 2-2 jafntefli liðanna á Írlandi.

Eins og áður segir er Jóan einhver allra besti leikmaður í sögu Færeyja en hann hefur leikið 94 landsleiki fyrir þjóð sína og gert í þeim 8 mörk. 

Hallgrímur Jónasson þjálfari KA lék með Jóan með liði OB í Danmörku á sínum tíma en Jóan hóf feril sinn með B68 Toftir í Færeyjum og hefur átt gríðarlega flottan feril þar sem hann hefur leikið með stórum liðum eins og Newcastle, Viking, Fredericia, Vejle, OB, Arminia Bielefeld og Beveren áður en hann kom fyrst til KA.

Undanfarið hefur hann leikið með liði KF Shkupi í Makedóníu en kemur norður á frjálsri sölu og verður virkilega spennandi að sjá kappann aftur í gula og bláa búningnum. KA leikur á ný í evrópukeppni í sumar og ljóst að reynsla Jóans mun hjálpa liðinu í þeirri baráttu auk leikjanna í Bestudeildinni og í titilvörn liðsins í Mjólkurbikarnum. Við bjóðum Jóan hjartanlega velkominn aftur norður.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is