Flýtilyklar
Ívar Arnbro á reynslu í Svíþjóð
Ívar Arnbro Þórhallsson er um þessar mundir á reynslu í Svíþjóð en Ívar sem er 15 ára gamall er gríðarlega efnilegur markvörður sem er að koma uppúr yngriflokkum félagsins. Þá var Ívar sjö sinnum í leikmannahópi meistaraflokks KA á nýliðnu tímabili.
Hann er nú á viku reynslu hjá liði Djurgårdens IF og í kjölfarið fer hann á vikureynslu hjá liði IF Brommapojkarna. Djurgården er eitt stærsta lið Svíþjóðar og ansi hreint spennandi að koma inn í þær aðstöður sem liðið hefur upp á að bjóða. Lið Brommapojkarna er þekkt fyrir eitt besta yngriflokkastarf Svíþjóðar sem hefur skilað ófáum gæðaleikmönnum.
Það er ekki nokkur spurning að Ívar á framtíðina fyrir sér og verður virkilega gaman að fylgjast með framgöngu hans á næstu árum. Það segir ýmislegt að hann fái þetta flotta tækifæri svona snemma á ferlinum.