Elvar Máni skrifar undir fyrsta samninginn

Fótbolti
Elvar Máni skrifar undir fyrsta samninginn
Elvar Máni og Arnar Grétarsson við undirskriftina

Elvar Máni Guðmundsson skrifaði í gær undir sinn fyrsta leikmannasamning við knattspyrnudeild KA en hann fagnaði einmitt 15 ára afmæli sínu á sama tíma. Hann gerði gott betur en að skrifa bara undir fyrsta samninginn því hann lék einnig sinn fyrsta meistaraflokksleik er KA vann KF í gærkvöldi.

Elvar Máni sem er mikið efni skrifaði undir fjögurra ára samning en hann varð Íslandsmeistari með 4. flokk KA í sumar og fór meðal annars á reynslu hjá Midtjylland í Danmörku í nóvember árið 2019. Þá hefur hann verið í úrtökuhópum hjá U15 ára landsliði Íslands.

Elvar kom inná í 6-0 sigri KA á KF í Kjarnafæðismótinu í gær og stóð sig með prýði og verður svo sannarlega spennandi að fylgjast áfram með framvindu þessa öfluga kappa næstu árin.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is