Flýtilyklar
Aðalfundur Knattspyrnudeildar KA 2022
14.02.2022
Fótbolti
Aðalfundur knattspyrnudeildar KA fyrir árið 2022 verður haldinn í KA-Heimilinu mánudaginn 21. febrúar næstkomandi klukkan 19:30. Áhugasamir félagsmenn eru hvattir til að mæta og taka þátt í starfi deildarinnar.
Dagskrá fundar
1. Formaður knattspyrnudeildar setur fundinn
2. Kosning fundarstjóra og fundarritara
3. Skýrsla stjórnar knattspyrnudeildar
4. Reikningar knattspyrnudeildar lagðir fram til samþykkis
5. Kosning í stjórnir knattspyrnudeildar
6. Önnur mál
Stjórn Knattspyrnudeildar KA