Flýtilyklar
Erlingur og Hrefna hlutu heiðursviðurkenningu ÍBA
Erlingur Kristjánsson og Hrefna Brynjólfsdóttir hlutu heiðursviðurkenningu ÍBA fyrir framlag sitt til KA á Íþróttahátíð Akureyrar á vegum Íþróttabandalags Akureyrar og Fræðslu- og lýðheilsuráðs Akureyrarbæjar sem fram fór í Menningarhúsinu Hofi.
Erlingur Kristjánsson er fæddur á Akureyri þann 7. maí 1962. Á löngum og farsælum keppnisferli spilaði Erlingur bæði knattspyrnu og handknattleik með meistaraflokkum KA og afrekaði m.a. það að vera í fámennum hópi íþróttamanna sem hafa bæði orðið Íslandsmeistari í handknattleik og í knattspyrnu, og það sem meira er að Erlingur var fyrirliði KA í báðum greinum þegar félagið lyfti Íslandsmeistaratitlinum, sem er einsdæmi.
Sem leikmaður og eftir að keppnisferlinum lauk var Erlingur að sinna þjálfun og hefur komið að þjálfun flesta flokka og greina félagsins, auk þess að hafa verið í ýmsum stjórnar- og trúnaðarstörfum innan KA. Erlingur hefur verið gríðarlega virkur í sjálfboðaliðastarfi KA, sérstaklega fyrir handknattleiksdeild og þá starf kvennaliðs KA/Þórs.
Erlingur sat í stjórn Íþróttabandalags Akureyrar í nokkur ár og er handhafi silfurmerkis ÍBA. Árið 2019 var Erlingur tekinn inn í goðsagnarhöll Handknattleiksdeildar KA auk þess að vera handhafi gullmerkis KA. Erlingur er óeigingjarn sjálfboðaliði sem gerir allt sem hann getur fyrir félagið sitt.
Hrefna Brynjólfsdóttir er fædd á Akureyri þann 18. maí 1965. Sem iðkandi lék Hrefna knattspyrnu með KA á sínum yngri árum sem og blak. Hrefna hóf að leika blak árið 1980 og er núna að spila sitt 45. blakár með KA. Samhliða því að spila blak með félaginu hefur Hrefna verið í ýmsum störfum og hlutverkum utan vallar fyrir blakdeild KA síðustu tvo áratugina. Mínútur og klukkustundir Hrefnu í sjálfboðavinnu fyrir félagið eru í þúsunda tali, þar sem hún hefur m.a. verið að sinna störfum á ritaraborði og línudómgæslu í blakleikjum hjá KA.
Það fer ekki endilega alltaf mikið fyrir Hrefnu en hún lætur sig ekki vanta í verkefnin og lætur verkin tala með bros á vör. Hrefna hefur lengi unnið ötult starf fyrir KA sem sjálfboðaliði og er frábær fyrirmynd fyrir aðra sjálfboðaliða í íþróttahreyfingunni sem mikilvægur hlekkur í að halda úti öflugu íþróttastarfi.
Við óskum þeim innilega til hamingju með þessa verðskulduðu viðurkenningu og kunnum þeim bestu þakkir fyrir þeirra ómetanlega framlag til KA.