Alex og Sandra íþróttafólk Akureyrar 2024

Almennt | Fótbolti | Lyftingar

Alex Cambray Orrason úr lyftingadeild KA og Sandra María Jessen knattspyrnukona úr Þór/KA voru í gær kjörin íþróttafólk Akureyrar árið 2024. Þetta er annað árið í röð sem Sandra María er kjörin en í fyrsta skiptið sem Alex hlýtur þennan heiður.

Kjöri íþróttamanns Akureyrar 2024 var lýst á Íþróttahátíð Akureyrar á vegum Íþróttabandalags Akureyrar og Fræðslu- og lýðheilsuráðs Akureyrarbæjar sem fram fór í Menningarhúsinu Hofi.

Alex Cambray Orrason er íþróttakarl Akureyrar í fyrsta sinn. Alex Cambray hefur átt afbragðs ár í sinni íþrótt, kraftlyftingum. Hann setti nokkur Íslandsmet, náði fremsta árangri allra íslenskra karlkyns keppanda á alþjóðamótum, ásamt því að hafa sigrað öll innlend mót ársins í búnaði óháð þyngdarflokki. Í mars keppti Alex á Íslandsmeistaramótinu í kraftlyftingum með búnaði, þar sem hann átti gott mót og landaði Íslandsmeistaratitli í sínum þyngdarflokki. Varð hann þar stigahæsti lyftari mótsins óháð þyngdarflokk.

Í maí keppti hann á Evrópumeistaramótinu sem haldið var í Lúxemborg. Þar keppti hann í sterkum flokk og lenti í 5. sæti og sló Íslandsmetið í samanlögðu með því að lyfta 840 kg samtals. Hann lyfti meðal annars 292.5kg í réttstöðulyftu sem er íslandsmet í hans flokk. Þá keppti hann á bikarmóti í kraftlyftingum í 105 kg flokki og sló þar íslandsmet í hnébeygju með 360,5 kg lyftu en það er stigahæsta hnébeygja sem hefur verið tekin á Íslandi. Á mótinu sigraði hann flokkinn og var jafnframt stigahæstur óháð þyngdarflokki sem tryggði honum bikarmeistaratitilinn. Í nóvember keppti Alex á heimsmeistaramótinu í kraftlyftingum með búnaði sem haldið var hér á Íslandi. Lenti hann þar í 9.sæti með 837.5 kg í samanlagðri þyngd og átti góðan dag í hnébeygju þar sem hann endaði í 6. sæti.

Alex lýkur árinu sem fjórtándi öflugasti lyftari ársins á heimslista alþjóða kraftlyftingasambandsins (IPF) og í 7. sæti á styrkleikalista Evrópska lyftingasambandsins (EPF). Nú í upphafi árs 2025 var Alex kjörinn íþróttakarl KA fyrir árið 2024.

Sandra María Jessen er íþróttakona Akureyrar í annað sinn. Sandra María er mikilvægur liðsmaður í ungu en öflugu liði Þórs/KA, fyrirmynd fyrir yngri iðkendur í ástundun, hugarfari, vinnuframlagi og baráttu, innan vallar sem utan. Sandra María var valin besti leikmaður Þórs/KA að loknu keppnistímabilinu 2024. Sandra María var algjör lykilleikmaður í frábærum árangri Þórs/KA í mótum ársins.

Hún er fyrirliði liðsins, reyndasti leikmaður þess og skoraði langflest mörk allra leikmanna. Með liði Þórs/KA endaði hún í 4. sæti Bestu deildarinnar ásamt því að spila til undanúrslita í bæði Lengjubikar og Mjólkurbikarkeppni KSÍ. Sandra María var valin besti leikmaður Bestu deildarinnar af leikmönnum deildarinnar og var að auki markadrottning deildarinnar. Hún skoraði alls 33 mörk í leikjum Þórs/KA í KSÍ-mótunum, 22 mörk í 23 leikjum í Bestu deildinni, tvö mörk í þremur leikjum í Mjólkurbikarkeppninni og níu mörk í sex leikjum í Lengjubikarnum. Að auki átti hún tíu stoðsendingar í þessum 32 leikjum.

Þá kom hún við sögu í níu landsleikjum, í byrjunarliði í mörgum þeirra. Nú í upphafi árs 2025 var Sandra María kjörin íþróttakona Þórs fyrir árið 2024.

Íþróttamenn Akureyrar 1979-2024:
1979 Gunnar Gíslason, handknattleikur og knattspyrna
1980 Haraldur Ólafsson, lyftingar
1981 Haraldur Ólafsson, lyftingar
1982 Nanna Leifsdóttir, skíði
1983 Nanna Leifsdóttir, skíði
1984 Halldór Ómar Áskelsson, knattspyrna
1985 Guðrún H. Kristjánsdóttir, skíði
1986 Freyr Gauti Sigmundsson, júdó
1987 Halldór Ómar Áskelsson, knattspyrna
1988 Guðrún H. Kristjánsdóttir, skíði
1989 Þorvaldur Örlygsson, knattspyrna
1990 Valdemar Valdemarsson, skíði
1991 Rut Sverrisdóttir, sund
1992 Freyr Gauti Sigmundsson, júdó
1993 Vernharð Þorleifsson, júdó
1994 Vernharð Þorleifsson, júdó
1995 Vernharð Þorleifsson, júdó
1996 Vernharð Þorleifsson, júdó
1997 Ómar Halldórsson, golf
1998 Vernharð Þorleifsson, júdó
1999 Vernharð Þorleifsson, júdó
2000 Ingvar Karl Hermannsson, golf
2001 Vernharð Þorleifsson, júdó
2002 Dagný Linda Kristjánsdóttir, skíði
2003 Andreas Stelmokas, handknattleikur
2004 Rut Sigurðardóttir, Tae Kwon Do
2005 Guðlaugur Már Halldórsson, akstursíþróttir
2006 Dagný Linda Kristjánsdóttir, skíði
2007 Dagný Linda Kristjánsdóttir, skíði
2008 Rakel Hönnudóttir, fótbolti
2009 Bryndís Rún Hansen, sund
2010 Bryndís Rún Hansen, sund
2011 Bryndís Rún Hansen, sund
2012 Arna Sif Ásgrímsdóttir, knattspyrna
2013 Hafdís Sigurðardóttir, frjálsar íþróttir
2014 Hafdís Sigurðardóttir, frjálsar íþróttir
2015 Viktor Samúelsson, kraftlyftingar
2016 Viktor Samúelsson, kraftlyftingar
2016 Bryndís Rún Hansen, sund
2017 Tryggvi Snær Hlinason, körfuknattleikur
2017 Stephany Mayor, knattspyrna
2018 Viktor Samúelsson, kraftlyftingar
2018 Hulda B. Waage, kraflyftingar
2019 Viktor Samúelsson, kraftlyftingar
2019 Aldís Kara Bergsdóttir listhlaup
2020 Viktor Samúelsson, kraftlyftingar
2020 Aldís Kara Bergsdóttir, listhlaup
2021 Brynjar Ingi Bjarnason, knattspyrna
2021 Aldís Kara Bergsdóttir, listhlaup
2022 Nökkvi Þeyr Þórisson, knattspyrna
2022 Hafdís Sigurðardóttir, hjólreiðar
2023 Baldvin Þór Magnússon, hlaup
2023 Sandra María Jessen, knattspyrna
2024 Alex Cambray Orrason, kraftlyftingar
2024 Sandra María Jessen, knattspyrna


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is