Flýtilyklar
Æfingatafla sumarsins tekur gildi 5. júní
Knattspyrnusumarið er að fara á fullt og tekur æfingatafla yngri flokka gildi á morgun, miðvikudaginn 5. júní. Allir flokkar æfa alla virka daga í sumar fyrir utan 8. flokk sem æfir mánudags til fimmtudags.
Aðalbjörn Hannesson er yfirþjálfari yngri flokka og er hægt að senda honum línu ef einhverjar spurningar eru í alli@ka.is.
Opið er fyrir skráningu iðkenda í NÓRA, ka.felog.is.
Hægt er að dreifa greiðslum í Nóra í allt að 3 mánuði. Ef þörf er á lengri dreifingu eða semja um greiðslur þarf að hafa samband á fotbolti@ka.is
Systkinaafláttur er 10% af hverju systkini - þriðja barn æfir frítt og þarf sú skráning að fara í gegnum Örnu Ívarsd. arna@ka.is
KA millideildaafsláttur 10%
Tómstundaávísun Akureyrarbæjar er kr 30.000 fyrir árið 2018.
Ef valið er að greiða með greiðsluseðli/um leggjast 390 kr við hvern seðil í seðilgjald. Við mælum því með því að greitt sé með kreditkorti, en þá leggst engin kostnaður við greiðsluna.