14.02.2021
KA hóf leik í Lengjubikarnum í dag er liðið tók á móti Íslandsmeisturum Vals í Boganum. Í sama riðli leika einnig Afturelding, HK, Grindavík og Víkingur Ólafsvík og fara efstu tvö liðin áfram í 8-liða úrslit keppninnar. Aðeins eru leiknir fimm leikir í riðlinum og ljóst að ekki má mikið fara úrskeiðis til að fara uppúr riðlinum
13.02.2021
KA leikur sinn fyrsta leik í Lengjubikarnum í knattspyrnu í dag þegar Íslandsmeistarar Vals mæta norður. Strákarnir hafa unnið alla leikina á undirbúningstímabilinu til þessa afar sannfærandi en fá heldur betur verðugt verkefni í dag
11.02.2021
Þorsteinn H. Halldórsson nýráðinn þjálfari A-landsliðs kvenna í knattspyrnu valdi í dag fyrsta æfingahóp sinn. Hópurinn mun æfa dagana 16.-19. febrúar næstkomandi en aðeins er um að ræða leikmenn sem leika á Íslandi að þessu sinni
10.02.2021
Aðalfundur knattspyrnudeildar KA verður haldinn í KA-heimilinu föstudaginn 19. febrúar 2021 kl. 20:00
06.02.2021
Daníel Hafsteinsson hefur gert 3 ára samning við knattspyrnudeild KA. Danna þarf ekki að kynna fyrir KA-fólki enda uppalinn á KA-vellinum og verður virkilega gaman að fá hann aftur heim og sjá hann klæðast gulu treyjunni á nýjan leik
06.02.2021
Annað Stefnumót vetrarins fer fram í Boganum í dag og leika þar listir sínar strákar og stelpur í 6. flokki. Fyrsta Stefnumót vetrarins fór fram um síðustu helgi er 7. flokkur spreytti sig og tókst það afar vel og stefnum við á að halda áfram þar sem frá var horfið
05.02.2021
Einar Ari Ármannsson skrifaði í dag undir tveggja ára samning við knattspyrnudeild KA. Einar Ari sem verður 18 ára í mars næstkomandi er gríðarlega efnilegur markvörður og var nýverið valinn í æfingahóp U18 ára landsliðs Íslands í knattspyrnu
05.02.2021
KA mætti Dalvík/Reyni í lokaleik sínum í riðli 1 í Kjarnafæðismótinu í gærkvöldi. Fyrir leikinn hafði KA unnið 6-0 sigur á KF og 5-1 sigur á Þór 2 og dugði því jafntefli gegn liði Dalvík/Reynis til að tryggja sér sæti í úrslitaleik mótsins
04.02.2021
KA leikur lokaleik sinn í riðli 1 á Kjarnafæðismótinu í knattspyrnu í kvöld er liðið mætir Dalvík/Reyni klukkan 20:30 í Boganum. KA sem hefur unnið sannfærandi sigra á KF og Þór 2 til þessa tryggir sér sigur í riðlinum með stigi eða sigri í kvöld og þar með sæti í úrslitaleiknum sjálfum
01.02.2021
Steinþór Már Auðunsson er kominn aftur heim en þessi stóri og stæðilegi markvörður hefur skrifað undir tveggja ára samning við knattspyrnudeild KA. Steinþór sem verður 31 árs í febrúar gengur til liðs við KA frá Magna á Grenivík þar sem hann hefur spilað undanfarin ár