15.07.2020
KA hefur samið við Arnar Grétarsson um að taka við sem þjálfari liðsins í Pepsi Max deild karla. Samningurinn við Arnar gildir út tímabilið.
15.07.2020
Knattspyrnudeild KA og Óli Stefán Flóventsson hafa komist að samkomulagi um starfslok Óla hjá félaginu. Gengi KA það sem af er tímabili er ekki ásættanlegt og telja báðir aðilar nauðsynlegt að gera þessar breytingar til að liðið nái sér á strik og sýni sinn rétta styrk. Liðið náði fimmta sæti undir stjórn Óla Stefáns í fyrra sem er besti árangur félagsins síðan félagið kom aftur upp í deild hinna bestu á Íslandi.
Stjórn Knattspyrnudeildar KA þakkar Óla Stefáni fyrir framlag sitt til félagsins og óskar honum velfarnaðar í framtíðinni.
Félagið mun nú þegar skoða sín mál varðandi þjálfun liðsins og mun ekki tjá sig nánar um málið að svo stöddu.
14.07.2020
Þór/KA hefur farið vel af stað í sumar og fær í dag heimaleik gegn FH klukkan 18:00 á Þórsvellinum. Stelpurnar eru komnar áfram í 8-liða úrslitin í Mjólkurbikarnum og eru með 6 stig af 9 mögulegum eftir fyrstu þrjá leikina í Pepsi Max deildinni
14.07.2020
KA og Fjölnir gerðu 1-1 jafntefli á Greifavellinum í gær þar sem Brynjar Ingi Bjarnason gerði mark KA strax á fyrstu mínútu leiksins. KA liðið komst ansi nálægt því í seinni hálfleik að tryggja sér öll stigin þrjú en það tókst hinsvegar ekki og liðin sættust því á jafnan hlut
13.07.2020
KA og Fjölnir gerðu í kvöld 1-1 jafntefli í 6. umferð Pepsi Max deildarinnar á Greifavellinum á Akureyri í kvöld. Mark KA skoraði Brynjar Ingi Bjarnason á fyrstu mínútu leiksins. Gestirnir jöfnuðu tuttugu mínútum síðar og þar við sat.
13.07.2020
Baráttan heldur áfram í Pepsi Max deild karla í dag þegar KA tekur á móti Fjölni á Greifavellinum klukkan 18:00. Bæði lið eru án sigurs eftir fyrstu leiki sumarsins og ljóst að gríðarlega mikilvæg stig eru í húfi fyrir bæði lið
12.07.2020
Þór/KA tók á móti Keflavík í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarsins í gær en leikurinn var fyrsti leikurinn hjá okkar liði í þó nokkurn tíma en síðasti leikur fór fram 24. júní. Á sama tíma hefur lið Keflavíkur verið á miklu skriði en Keflavík er á toppi Lengjudeildarinnar og mátti því búast við hörkuleik
06.07.2020
Við í KA búum svo vel að njóta krafta nokkurra frábærra ljósmyndara sem mynda starf okkar í bak og fyrir. Það hefur heldur betur verið nóg að gera undanfarnar vikur í fótboltanum og birtum við nú myndaveislur frá fyrstu þremur heimaleikjum sumarsins
05.07.2020
34. N1 mót KA fór fram á KA-svæðinu undanfarna daga og tókst ákaflega vel til. Mótið heldur áfram að stækka ár frá ári og var metþáttaka í ár er 212 lið kepptu í 9 deildum. Keppendur voru um 2.000, 204 lið frá 49 félögum en alls voru leiknir 1060 leikir sem gera 29.952 mínútur af fótbolta
05.07.2020
KA og Breiðablik gerðu dramatískt jafntefli í dag í 4. umferð Pepsi Max deildar karla. KA komst yfir í uppbótartíma en gestirnir jöfnuðu enn síðar í uppbótartímanum. Æsispennandi lokamínútur.