Úrslitin hefjast á morgun kl. 19:30 þegar meistarar KA taka á móti HK í KA-heimilinu á morgun.
HK tryggði sér rétt til þátttöku í úrslitaviðureigninni með sigri á Stjörnunni 3-0 á föstudagskvöldið. Þetta er annað árið í röð sem þessi lið mætast í úrslitaviðureigninni en reikna má með hörkuleik þar sem hvergi verður gefið eftir. Hvetjum við alla sem hafa tök á því að mæta í KA-heimilið og styðja KA strákana til sigurs.
Þess má geta að leikurinn verður sýndur á netinu www.n4.is en KA vill þakka Þorra í N4 og þeim góðu styrktaraðilum sem lögðu málefninu lið fyrir stuðninginn og hvetur fólk til að kíkja á leikinn á netinu ef það hefur ekki tök á því að mæta í KA-kofann.