Þessi vasklegu lið mættust á síðasta haustmóti KA. Þarna eru m.a. með KA tvíburarnir Hafsteinn og Kristján Valdimarssynir sem nú spila með VK Álaborg
Hið árlega Opna blakmót KA í verður haldið um helgina. Mótið hefst á föstudagskvöld kl. 18:30 og líkur um kl. 16:00 á
laugardag. Góð þátttaka er á mótinu að vanda alls 22 lið, 14 kvennalið og 8 karlalið. Þess á geta að KA er með 7
lið á mótinu allt frá unglingum upp í öldunga sem er nýtt met hjá félaginu.