Flýtilyklar
Rafrænn 93 ára afmælisfögnuður KA
10.01.2021
Almennt | Fótbolti | Handbolti | Júdó | Blak
Knattspyrnufélag Akureyrar heldur upp á 93 ára afmæli sitt að þessu sinni með sjónvarpsþætti vegna Covid 19 stöðunnar. Í þættinum er íþróttakarl og íþróttakona ársins hjá félaginu kjörin auk þjálfara og liðs ársins. Böggubikarinn er að sjálfsögðu á sínum stað og Ingvar Már Gíslason formaður flytur ávarp sitt.
Þá undirrita Ingvar og Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri Akureyrar viljayfirlýsingu er snýr að uppbyggingu íþróttamannvirkja á félagssvæði KA. Það er því ljóst að þú vilt ekki missa af þessum glæsilega þætti okkar sem gerir upp áhugavert íþróttaár í sögu félagsins.