KA og Haukar gerðu í gærkvöldi markalaust jafntefli á Akureyrarvelli. En KA var töluvert sterkari aðilinn heilt yfir í leiknum og grátlegt að liðið hafi ekki tekið stigin þrjú.
KA 0 0 Haukar
Lið KA í dag:
Rajkovic, Hrannar Björn, Atli Sveinn, Gauti, Viktor Örn, Edin, Davíð Rúnar, Hallgrímur Mar, Ævar Ingi, Stefán og Arsenij
Bekkur: Fannar, Baldvin, Jóhann, Ólafur Hrafn, Gunnar Örvar, Úlfar og Bjarki Þór.
Skiptingar:
Atli Sveinn út Bjarki Þór inn (61)
Arsenij út Gunnar Örvar inn (70)
Tvær breytingar voru gerðar á KA liðinu frá síðasta leik liðsins. Gauti kom inn í vörnina í stað Karsten sem tók út leikbann. Edin kom inn á miðjuna í stað Jóa Helga sem var á bekknum.
KA hóf leikinn af miklum krafti og kom fyrsta færi KA eftir sjö mínútna leik þegar að Stefán Þór vann boltann af varnarmanni Hauka rétt fyrir utan teig og komst einn gegn Sigmari í marki Hauka en skotið var slakt og beint á Sigmar sem varði auðveldlega.
KA stýrði fyrstu tuttugu mínútum leiksins algjörlega og á 18. mínútu var Ævar Ingi klipptur niður af Hafþóri Þrastarsyni rétt fyrir utan teig og uppskar hann gult spjald frá Þóroddi Hjaltalín dómara leiksins. Spyrnuna tók Arsenij og var hún slök og átti markvörður Hauka ekki í miklum vandræðum með hana.
Skömmu seinna tók Hallgrímur Mar aukaspyrnu af löngu færi sem markvörður Hauka gerði vel í að verja.
Gestirnir fengu síðan sannkallað dauðafæri á 22. mínútu leiksins þegar að fyrirgjöf frá hægri kanti fór framhjá öllum pakkanum í teignum og endaði hjá Úlfari Hrafni á fjærstönginni sem skaut rétt framhjá úr stuttu en jafnframt þröngu færi.
Arsenij komst svo nálægt því að koma KA yfir þegar að Hallgrímur lék varnarmenn Hauka grátt og átti góða sendingu inn fyrir vörn gestanna á Ævar Inga sem gaf fyrir þar sem Arsenij og varnarmenn Hauka voru í baráttunni og náði markvörður Hauka að koma höndum á boltann og verja. Þarna mátti engu muna að boltinn færi inn.
Lítið markvert gerðist það sem eftir lifði fyrri hálfleiks nema það að Gauti fór í skallabolta við sóknarmann Hauka rétt fyrir utan vítateig KA og gekk heldur vasklega til verks og lágu þeir báðir meiddir eftir og aukapspyrna dæmd. Spyrnan fór framhjá og staðan í hálfleik því markalaus.
Síðari hálfleikur hófst á rólegu nótunum en eftir fimm mínútna leik gerðist afar umdeilt atvik. Hallgrímur Mar tók þá aukaspyrnu af löngu færi sem endaði í þverslánni og niður og fór boltinn töluvert inn fyrir marklínuna en dómarar leiksins voru á öðru máli og ekkert mark dæmt. Með hreinum ólíkindum hvernig aðstoðardómari 1 flaggaði ekki mark.
Markið sem ekki fékk að standa virkaði eins og vítamínsprauta á KA liðið og sérstaklega Hallgrím Mar sem kom sér í færi hvað eftir annað eftir atvikið. Nokkrum mínútum síðar átti Hallgrímur sviðið og var hann líklegur í þremur sóknum KA í röð en öll skot hans enduðu rétt framhjá frá markinu.
Á 69. mínútu átti svo Stefán Þór skalla í stöngina eftir góða fyrirgjöf frá Viktori Erni. Stefán var svo aftur að verki á 83. mínútu þegar að Ævar átti flotta sendingu inn fyrir á hann en þá þrumaði hann boltanum í samskeytin úr þröngu færi. KA sótti svo áfram stíft að marki Hauka það sem eftir lifði leiks en án árangurs og svekkjandi jafntefli því staðreynd.
KA-maður leiksins: Hallgrímur Mar Steingrímsson ( Var frábær í leiknum. Skoraði stórglæsilegt mark sem hefði átt að standa. Gerði varnarmönnum Hauka lífið leitt. Vinnusemin og gæðin sem Hallgrímur sýndi í dag voru til fyrirmyndar.) Einnig ber að hrósa varnarlínu KA í dag og Rajko sem lokuðu vel á allar aðgerðir gestanna úr Hafnarfirðinum.
Næstu tveir leikir KA eru á útivelli. Fyrst gegn Grindavík laugardaginn 6. september og svo gegn Selfoss laugardaginn 13. september. Síðasti heimaleikur KA og jafnframt síðasti leikur tímabilsins er svo gegn ÍA þann 20. september.