Tómas Veigar Eiríksson gerir þriggja ára samning við KA

Tómas Veigar Eiríksson, drengur fæddur árið 1998 skrifaði í gær undir þriggja ára samning við KA. Tómas er uppalinn KA maður og spilar einnig með 2. flokk félagsins. 

Tómas leikur sem miðjumaður og spilaði í fyrra lykilhlutverk með 2. flokk félagsins ásamt því að leika einn leik fyrir Dalvík/Reyni í 3. deild karla, sem hluta af samstarfi KA og Dalvík/Reynis.

Við óskum Tómasi til hamingju með sinn fyrsta samning við KA og hlökkum til að sjá hann í eldlínunni með KA í framtíðinni.