Anna Rakel lagði upp fyrsta mark Íslendinga en aukaspyrna hennar endaði á Andreu Celeste sem skoraði þrennu í fyrri hálfleik.
Harpa kom inn á í hálfleik í markið og hélt hreinu. Hún hefur því leikið þrjá landsleiki en ekki enn fengið á sig mark.
Saga Líf kom inn á þegar um 20 mínútur voru eftir en hún byrjaði hina báða leikina.
Þórsarnir stóðu einnig fyrir sínu en Andrea Mist kom inn á á sama tíma og Saga Líf og átti þátt í fjórða markinu en skot hennar endaði í þverslánni og Elena fylgdi eftir með marki og Karen Sif kom inn á í hálfleik.
Umfjöllun af www.ksi.is:
Stelpurnar í U17 luku keppni á undirbúningsmóti UEFA í Belfast í dag með því að leggja Færeyinga að velli, 5 - 1. Staðan í leikhléi var 3 - 1 fyrir Ísland en þetta var þriðji leikur liðsins í mótinu, sigur vannst einnig á Wales en tap gegn heimastúlkum í Norður Írlandi.
Andrea Celeste Thorisdottir átti sannkallaðan stjörnuleik í fyrri hálfleiknum en hún skoraði öll þrjú mörk liðsins ásamt því að fá vítaspyrnu sem ekki nýttist. Í seinni hálfleik bætti Ísland við tveimur mörkum til viðbótar, fyrst var Elena Brynjarsdóttir að verki og síðan, fyrirliðinn, Jasmín Erla Ingadóttir.
Góður sigur í lokaleiknum á þessu undirbúningsmóti sem á, án efa, eftir að reynast dýrmæt reynsla fyrir þessar efnilegur stelpur.