Gunnar Níelsson og Ólafur Hrafn
Í gær skrifaði Ólafur Hrafn Kjartansson undir þriggja ára samning við
knattspyrnudeild. Ólafur sem er 15 ára og 210 daga gamall er að öllum
líkindum yngsti leikmaður sem knattspyrnudeild K.A. hefur samið við.
Ólafur hefur nú þegar vakið áhuga liða utan landsteina, og hefur hann
farið til æfinga hjá enska úvalsdeildarliðinu Norwich og dönsku
meistaranna í FCK Kaupmannahöfn.
Hann á einnig landsleiki að baki með landsliði Íslands U 16 ára. ,,Ólafur
er mjög efnilegur leikmaður sem okkur hlakkar til að fylgjast með á
komandi árum", sagði Gunnar Níelsson formaður knattspyrnudeildar í dag
eftir undirskrift samnings.
Gaman er að segja frá því að málverk það sem sjá má í bakgrunni myndar sem
tekin var í dag við undirritun samnings var málað af afa Ólafs, Óla G
Jóhanns. Hann var eins og allir vits einn fremsti listmálari landsins og
reyndar viðurkenndur um víða veröld sem slíkur.