Tvíburabræðurnir Nökkvi Þeyr og Þorri Mar Þórisson hafa framlengt við knattspyrnudeild KA og eru nú samningsbundnir félaginu út sumarið 2024. Þetta eru frábærar fréttir enda hafa bræðurnir verið ákaflega öflugir í gula og bláa búningnum og orðnir algjörir lykilmenn í KA liðinu.
Bræðurnir sem eru 22 ára gamlir gengu til liðs við KA fyrir sumarið 2019 en þar áður höfðu þeir meðal annars verið á mála hjá Hannover 96 í Þýskalandi. Nökkvi Þeyr skoraði 3 mörk fyrir KA í sumar og hefur nú gert 8 mörk fyrir félagið í deild og bikar.
Þorri Mar leikur aftar á vellinum og stóð sig frábærlega í stöðu bakvarðar á nýliðnu tímabili. Hann var meðal annars verðlaunaður fyrir frammistöðu sína með því að vera kjörinn efnilegasti leikmaður liðsins.
KA endaði í 4. sæti Pepsi Max deildarinnar á síðustu leiktíð og alveg ljóst að liðið ætlar sér enn stærri hluti á næsta tímabili. Það er stórt skref í undirbúningnum fyrir komandi sumar að halda þeim bræðrum áfram innan okkar raða.