KA leikur sinn fyrsta heimaleik í sumar þegar liðið tekur á móti ÍBV á Akureyrarvelli á morgun, laugardag, klukkan 16:00. Mikil eftirvænting er í loftinu enda búist við miklu af okkar liði í sumar og gaman að fá loksins heimaleik.
Það verður alvöru stemning á Akureyrarvelli á morgun og verður hitað upp sitthvorum megin við völlinn. Það er því um að gera að mæta snemma til að taka þátt í fjörinu og einnig mikilvægt að klæða sig eftir veðri.
14:30-15:45:
Að sunnan, aðal-megin, verður létt Carnival stemming. Kakó og kleinur gefins, andlitsmálun, KA-varningur til sölu, tónlist og stemming, léttur fótbolti, happadrætti og síðast en ekki síst koma leikmenn meistaraflokks um 75 mínútum fyrir leik og hægt verður að taka myndir af sér (börnunum sínum) með þeim! Fyrir þá sem eru svangir, þá verður Lemon á staðnum með djús og samlokur til sölu!
13:45-15:45
Að norðan verða svo Schiötharar með Njálsbúð opna. Þar verða drykkir á vægu verði ásamt því að boðið verður uppá pizzu og grillkjöt á meðan birgðir endast, og eins má segja að frostpinnar verði í boði fyrir börnin.
Fótboltaleikur hjá KA er miklu meira en 90 mínútur. Þetta er viðburður þar sem er gaman að mæta snemma og taka stemminguna, njóta þess sem KA er að bjóða uppá og skemmta sér.
Þetta er eitthvað fyrir alla fjölskylduna. Hjálpumst að við að gera fótboltaleik á Íslandi meira en bara 90 mínútur með kaffi í stúkunni, gerum þetta að viðburði eins og þeim sem við sækjum erlendis og borgum fúlgur fjár fyrir!!!
Mætum tímanlega á morgun, styðjum við liðið og áfram KA!