Danski bakvörðurinn Mark Gundelach er genginn til liðs við KA og mun leika með liðinu út núverandi keppnistímabil. Mark sem er 29 ára gamall kemur frá HB Köge í Danmörku en hann hefur einnig leikið með Roskilde, SönderjyskE og Nordsjælland í Danmörku.
Mark hefur leikið alls 257 leiki fyrir dönsku liðin en hann lék meðal annars í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu með Nordsjælland. Í þessum leikjum hefur hann skorað 7 mörk og verður gaman að sjá til þessa öfluga kappa í KA búningnum út tímabilið.
KA er í harðri baráttu í efri hluta deildarinnar þegar liðið á níu leiki eftir og verður spennandi að sjá hvernig Mark nær að koma inn í okkar öfluga lið. Við bjóðum hann hjartanlega velkominn norður og í gult og blátt!