Knattspyrnudeild KA stendur fyrir kynningarkvöldi á Bryggjunni á mánudaginn klukkan 20:00. KA hefur leik í Bestu deildinni þann 20. apríl og um að gera að koma sér í gírinn.
Léttar veitingar verða á boðstólum, kynning á leikmönnum og ársmiðasala í fullum gangi. Hlökkum til að sjá ykkur!
Við minnum á að ársmiðasalan er hafin í Stubbsappinu og því auðvelt að festa kaup á ársmiða. Í boði eru fjórir valmöguleikar:
Bronsmiðinn veitir aðgang að heimaleikjum KA í Bestu deildinni.
Bronsmiðinn veitir aðgang að heimaleikjum KA í Bestu deildinni fyrir 16-25 ára.
Silfurmiðinn veitir aðgang að heimaleikjum KA í Bestu deildinni.
Silfurmiðinn veitir einnig aðgang að kaffinu í hálfleik.
Gullmiðinn veitir aðgang að heimaleikjum KA í Bestu deildinni.
Gullmiðinn veitir einnig aðgang að kaffinu í hálfleik.
Fyrir tvo leiki í sumar verður flottur matur og spjall í boði fyrir gullmiðahafa.
Athugið að ef einhverjar spurningar eru varðandi Stubb er hægt að hafa samband við agust@ka.is